Hlíðasmári 17, Kópavogur sími 550 3000
Fasteignamiðstöðin
Fasteignamiðstöðin var stofnuð í júlí 1958 af Sigurði Sigfússyni. Hún var fyrst til húsa að Austurstræti 14 í Reykjavík. Seinni hluta ársins 1985 kaupir Magnús Leópoldsson Fasteignamiðstöðina í félagi við aðra og var hún þá til húsa að Hátúni 2B í Reykjavík. Það er svo 9. júní 1994 sem Magnús öðlast löggildingu sem löggiltur fasteigna- og skipasali og í dag á hann og rekur Fasteignamiðstöðina.
Fasteignamiðstöðin var staðsett í Skipholti 50b í Reykjavík frá 1988, en þann 3. nóvember 2002 var starfsemin flutt í glæsilegt húsnæði að Hlíðasmára 17 í Kópavogi.
Alhliða fasteignasala
Fasteignamiðstöðin er alhliða fasteignasala sem selur íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, bújarðir og sumarhús, stærri fyrirtæki auk þess að gera matsgerðir fyrir einstaklinga og stofnanir. Fasteignamiðstöðin hefur skapað sér ákveðna sérstöðu á markaðnum með því að vera langstærsti aðilinn í sölu bújarða.
Verðmöt
Undanfarin ár hefur á vegum Fasteignamiðstöðvarinnar verið gerður mikill fjöldi verðmata fyrir einstaklinga og stofnanir. Sá þáttur í starfseminni hefur aukist mjög mikið en gildi áreiðanlegs verðmats er mjög mikið þar sem þekking er í fyrirrúmi.
Fasteignamiðstöðin ehf
Hlíðasmára 17, 203 Kópavogur
Sími 550 3000, fax 550 3001
Kt. 500505-2570
Magnús Leópoldsson
löggiltur fasteignasali
magnus@fasteignamidstodin.is
Magnús Leópoldsson
lögg. fasteignasali
magnus@fasteignamidstodin.is
Magnús Leópoldsson, lögg. fasteigna- og skipasali - sími 550 3000
Fasteignamiðstöðin, Hlíðasmára 17, 201 Kópavogur - fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is